!!Hola, buenos días!!

Bienvenido....

26.11.2007 22:41:05 / arnybogga

jammm

komin ný síða: http://arnysif.bloggar.is

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.10.2007 12:57:34 / arnybogga

Leiðindi....

Núna akkurat sit ég í hundleiðinlegum fyrirlestir í Skriðu. Og það er verið að fara að tala um málfarsmun og málsnið getiðið ýmindað ykkur hvað þetta að er skemmtilegt. En ég er ekki alveg nógu sátt með kommeta fjöldan hjá ykkur sem skoðið síðuna því að það eru að koma um 20 manns á dag hingað inn og engin kvittar!!!! Ég er bara svo forvitin að ég verð að vita hverjir eru að lesa vitleysuna sem ég er að skirfa hingað inn. Loksins er komið að því að ég er að fara vestur á fimmtudag. Hef ekki farið síðan á réttum....það er komin mánuður síðan það er allt of langt! Ég hef ekkert meira að segja..... ætla að fara að hlusta

» 5 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 20:47:52 / arnybogga

HAHAHAHA ég hef aldrei hlegið jafn mikið - hvað segir það mikið um mig...

Draugadrjóli: Þú finnur hann koma út, en það er enginn kúkur í klóinu þegar þú kíkir.

Hreinn skítur: Sá sem þú skítur og sérð í skálinni, en það er ekkert á skeinipappírnum.

Eltikúkur: Þegar þú ert búin að kúka og búin að girða hálfa leið upp um þig og fattar að þú þarft að kúka meira.

Dauðadrumbur: Svo ógeðslega stór að þú þorir ekki að sturta án þess að búta hann í sundur með blýanti.

Loftpressukúkur: Kemur með svo miklum látum að allir í kallfæri flissa.

Þynnkuskita: Kemur eftir fyllerí. Helstu einkenni hennar eru bremsuför í skálinni.

Ohh-ég-vildi-að-ég-gæti-kúkað kúkur: Þú þarft að kúka en situr bara á dollunni og fretar.

Mænustunguskítur: Þessi er svo brjálæðislega sársaukafullur að þú ert viss um að hann er á leiðinni út þversum.

Rasskinnableytuþrumari: Fer út á svo miklum hraða að afturendinn á þér rennbleytist af klósettvatni. Einnig þekktur sem Orkuþrumari.

Háklassakúkur: Kúkur sem lyktar ekki.

Óvæntur kúkur: Þú ert ekki einu sinni á klóinu því þú hélst að þú þyrftir bara að prumpa en... úps, sparð.

Slórskítur: Kúkurinn lostar ekki frá rassgatinu á þér þó þú sért búin að kúka fyrr en þú hristir þig vel.

Atómsprengja: Þig svíður undan þessum á leiðinni út, og svíður enn í marga klukkutíma á eftir.

Skopparakúkur: Hörð spörð sem fara eins og skopparaboltar um alla skálina (kostur: þarf lítið að skeina)

Mikilmennskukúkur: þú rembist og rembist og svo kemur eitt pínulítið lambasparð.

Klippikúkur: sem er svo langur að þú þarft að kúka - klippa - kúka - klippa

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 13:59:37 / arnybogga

Punktablogg dagsins

Það sem búið er að gerast og það sem framundan er í lífi mínu hérna í Reykjavíkinni:
  • Ég er búin að vera mikið fyrir vestan, fór alveg 3 helgar í röð en núna held ég að ég haldi mér bara í Reykjavíkinni eitthvað, þó svo að það sé alltaf ljúft að fara vestur. Það er bara svo agalega leiðinlegt að keyra þetta einn.
  • Búin að gera eina rannsóknarritgerð í skólanum og á að skila henni á föstudaginn.
  • Skellti mér í bíó um helgina á Veðramót, rosalega skrítið að sjá brotin í myndinni sem eru tekin fyrir vestan. Það var bara eins og ég hefði verið að horfa út um stofugluggan heima hjá mér.
  • Kíkti líka á bílasölur um helgina og varð ástfanginn en ég á ekki nógu marga penginga þannig að ég þarf bara að láta mér dreyma aðeins lengur.
  • Mig dreymir bara skrítna drauma þessa dagana
  • Svo framundan er:
  • 30% verkefni í Þroskasálfræði, skiladagur 7 nóv
  • 35% verkefni í Leikskólanum, skiladagur 7 nóv
  • Þannig að það verður svolítið mikið að gera hjá mér þessar næstu vikur...
  • Svo fljótlega í nóv tekur við vettvangsnám hjá mér í viku
  • Afmælið mitt 22.nóv
  • Svo eru það bara prófin sem byrja hjá mér í des, ég fer reyndar bara í 3 próf sem klárast 18 des...stuð!!
  • Svo er orðið rosalega heimilislegt hjá mér hérna í Krummaholunni minni, búin að fá blóm til að reyna að halda á lífi (stór áskorun), komin með punt á sófaborðið hjá mér, aðstöðu til að læra, og svo má ekki gleyma seríunni sem ég er komin með á sjónvarpshilluna hjá mér!!! :)

Já svo ef einhver vill þá má sá hinn sami gefa mér stóran blómvönd, víst að ég á ekki kærasta. Ég fór nefnilega í blómabúð um helgina og langar rosalega í blómvönd!!

Það sem mig langar í í afmælisgjöf:

  • Bangsa, mjúkan og krúttlegan
  • Púlsmæli
  • Blómvönd
  • Eitthvað fallegt til að gera heimilislegt hjá mér

Það var ekkert meira, þangað til næst;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 20:15:07 / arnybogga

Rigning endalaust.....

Nú sko hrinja inn lítil verkefni úr öllum áttum og ég er búin að eyða hálfum deginum í að reyna að klára þetta bara, eða það sem ég get gert, svo er ég líka búin að vera að lesa. Hef bara ekki verið svona dugleg að læra síðan ég veit ekki hvenær. En það er annað mál....8)

Maður er enn byrjaður hjá einkaþjálfara á morgnanna kl 7 til að reyna að ná enn meiri árangri en komin er. Þessi er sko virkilega að láta mann púla það get ég sko sagt. Ég hélt að hún ætlaði gjörsamlega að ganga frá mér á mánudaginn ég var farin að skjálfa í höndunum og gat varla lyft höndunum einum saman upp fyrir höfuð. Þannig að vonandi skilar þetta sér í syrkari vöðvum á endanum. Ég er bara ótrúlega hress seinnipartin miða við að ég er að vakna á morgnanna kl 06:00 :$ Svo er það auðvita aðalmálið hjá mér, kemst voða lítið annað að þessa dagana en réttir sem ég er að fara í á laugardaginn. :DÉg er orðin frekar spennt fyrir því að fá aðeins að hlaupa og láta reyna á hvað ég get. vonandi eitthvað betur en síðustu skipti því að ég er örlítið léttari á mér en ég hef verið áður....... en ég hef ekkert meira að segja í bili bara svona að láta vita að ég er enn á lífi!!! :haha::haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.09.2007 19:23:21 / arnybogga

Long time no blogg....

Já ég er enn á lífi hef bara ekki nennt að blogga neitt að viti. Var reyndar búin að skrifa hellings færslu hérna um daginn og svo þegar ég ætlaði að fara að setja hana inn þá bara allt horfið, veit ekki hvað klikkaði því að ég skrifa alltaf færslurnar mínar í Word!!! En ég nenni ekki að skrifa allt sem ég er búin að vera að gera síðastliðinn mánuð þannig að ég ætla bara að skella þessu í punktablogg: 

  • Fór til Marmaris og þar var vel heitt (40+ gráður í skugga)
  1. Fór þar í Tyrkneskt bað
  2. Var mikið í sólbaði
  3. Guggnaði á því að syngja í karoke 
  • Skólin byrjaði bara með hörku strax þegar ég kom heim
  • Hef bara ekkert farið vestur síðan í byrjun ágúst, ótrúlegt en satt !!
  • Skellti mér á Astrópíu með henni Rebekku á síðustu helgi, myndin var bara mjög góð Laugavatnsferð með KHÍ var í gær, mikið drukkið þar.... ekki ég reyndar held að ég hafi verið eina sem var ekki að drekka!
  •  Stefnan er tekin á vesturlandið eftir 2 vikur þ.e. 21.sept
  • Hvað er málið með umferðina hérna í Rvk kl 08:00, þetta er bara ekki eðlilegt!! Ég veit að ég er góðu vön ;)
  •    Búið að rigna síðan ég kom til landsins, held að ég ætti bara að koma mér úr landi aftur 

Segið mér svo eitthvað sniðugt!!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.08.2007 14:41:10 / arnybogga

Já þá er komið að því:)

Marmaris here i come..... þá er komið að því sem ég er búin að vera að tala um í allt sumar. Ég er að fara til Marmaris á föstudaginn og verð í 2 vikur og kem vel steikt heim aftur held ég!! Annars er ég bara búin að vera heima að pakka og svoleiðis, er að verða til ;) Verslunnarmannahelgin var tekin með trompi, datt í það og man ekki neitt og held að ég sé ólétt....... 

Nei ekki satt en ég var bara heima að vinna og vinna meira og svo er ég bara komin í smá frí núna þangað til ég byrja í skólanum sem verður bara fínt að geta farið aðeins að láta heilasellurnar vinna smávegis, held að það sé komin tími til! Jæja best að fara að klára að pakka niður og koma sér svo bara í bæinn..... sjáumst síðar ;) 


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.07.2007 19:13:25 / arnybogga

23.júlí 2007

Já þið segið það... ætti maður að skella inn nokkrum línum hérna í tilefni dagsins. Þetta helsta sem er að frétta af mér er það að ég er búin að fá inn í KHÍ og er bara mjög ánægð með það.  Ef ég var ekki búin að nefna þetta.... Smá stress samt í gangi en það verður fljótt að fara! Reyndar líka vegna þess að ég veit ekkert almennilega hvar ég mun búa í hinni stóru Reykjavík, en það kemur vonandi bara í ljós. Svo er maður bara í tómri leti hérna fyrir vestan lítið annað en vinnan og svo bara heim að dunda eitthvað, labba upp á fjall eða.... svo fer að styttast í að maður fari bara að pakka og svona. Þetta sumar er bara búið að vera fljótt að líða og svo verður maður bara búin með háskóla áður en maður veit af! Þetta er bara svona það helsta hjá mér þessa dagana. Nenni ekki að bulla neitt meira þannig að bæjó

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.07.2007 21:37:56 / arnybogga

Leti.is

Sorry fólk sem les þessa síðu er ekki alveg að nenna að skrifa eitthvað eins og er, ef þið viljið fá fréttir þá bara hringja eða ég er voða oft á msn....

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.06.2007 20:58:03 / arnybogga

21.júní 2007

Jáhá er komin tími á smá update hérna á þessari síðu, já ég held það bara! Hér er voða lítið sem skeður, krían er reyndar búin að verpa eitthvað og komin aðeins meiri æsingur í hana þegar maður reynir að fara í göngu hérna í nágrenninu en þá kemur fjallið bara sterkt inn í sumargöngurnar;) það fer líka að styttast í vinnuskipti hjá mér :( vildi að ég gæti bara verið á þessum vinnustað í allt sumar, en það er víst ekki hægt!!! Svo er líka tímin ótrúlega fljótur að líða og ég fer bara bráðum að fara til Tyrklands. Það er mikið búið að segja mér í vinnunni að koma ekki með einhvern tyrkja heim aftur en ég held að það sé engin hætta ég verð bara þar í 2 vikur....:haha: Og já talandi um handboltaleikinn sem ég fór á, það var auðvita bara geðveikt gaman enda var ég vel þreytt að keyra heim og var líklega að gera suma vel pirraða en það er annað mál. Svo styttist líka í það að ég komi fram opinberlega, syngjandi þá, ef að ég verð búin að ná þessu kvefi úr mér í tæka tíð. Því að þegar ég söng þetta yfir í morgun var þetta bara falskt og leiðinlegt og gat ég ekki einu sinni sungið einn hluta úr einu laginu, ekki vil ég gera það svoleiðis þannig að tímin verður bara að leiða það í ljós hvort að ég geti þetta... en læt heyra í mér síðar

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.06.2007 18:59:07 / arnybogga

Sólin er komin í Rifið, og reyndar krían líka...

Loksins er komið sumar og sólin er farin að skýna hérna eins og engin sé morgundagurinn. Ég meira að segja er komin með hörku lit í andlitið eftir föstudaginn í vinnunni því blessuð börnin voru bara meira og minna úti þann daginn rétt komu inn til að borða. Annars er bara lítið að frétta maður var bara einn heima um helgina og slappaði bara af fór í pottin og svoleiðis huggulegheit. Svo verður bara farið í Reykjavíkina á næstu helgi og skellt sér á landsleik í handbolta og svo heim eftir leik. Ég verð svo meira og minna ein heima í vikunni eftir það því að foreldrarnir eru að fara í ferðalag og bróðirinn á Marmaris. Svo er það ættarmót hérna í Rifinu á þarnæstu helgi og þá verður mín sko í sviðsljósinu því að ég er aðeins að fara að syngja fyrir ættingjana, verður bara stuð ;) þannig að næstu dagar fara í æfingar hérna í kjallaranum verð búin að gera alla kolkreisí.....nei fólk hlítur nú að þola smá gaul það er ekki eins og það sé falskt....En ekkert slúður hér á bæ þannig að ég ætlaði bara að láta aðeins vita af mér!

» 2 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 23:13:22 / arnybogga

31.maí 2007

Lífið gengur bara sinn vana gang hérna í sælunni, ég er bara enn að leikskólast og það er bara æði, þau eru svo óborganleg þessi blessuð börn! Svona núna fer þetta að komast í fastara form hjá mér í leikskólanum því ég hef bara eiginlega verið að hlaupa inní þegar vantar síðan ég byrjaði en fæ núna að komast inn í skipulagið sem er bara gott, þá veit maður betur hvernig dagurinn gengur fyrir sig! Svo er það bara sjómannahelgin framundan og það á að skella sér á ball á sunnudaginn og svo bara í vinnu á mánudagsmorgun sem verður bara stuð, en svo sem bara fínt þar sem ég byrja ekki að vinna fyrr en kl 11..... svo er ég komin með pottþéttar vaktir á Elló líka þannig að ég er bara sæl með mitt;) Já ég veit bloggið hjá mér snýst svolítið mikið um vinnuna hjá mér en það er jú það sem ég er að gera hérna það er að vinna! Næsta Reykjavíkurferð verður líklega barasta ekkert fyrr en 17.júní ótrúlegt en satt. En það gæti alveg komið uppá fyrr, maður veit aldrei! Svo er mér farið að langa í ferðalag, er að spá í að gista bara í hjólhýsinu hérna í götunni um helgina, ef einhver vill koma þá er sá hinn sami bara velkomin í kósý stemningu hjá mér;) en jæja ætla ekki að hafa þetta lengra  GÓÐA NÓTT

Svo var ég að breyta könnuninni endilega takið þátt! Og svo ef það er eitthvað annað sem þið haldið þá bara skellið þið því hingað í kommentin;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 22:49:15 / arnybogga

23.maí 2007

Vá hvað tímin er fljótur að líða, á morgun er komið ár síðan ég útskrifaðist sem stúdent úr FB. Mér finnst sko kanski eins og það séu svona 4 mánuðir síðan! En þetta líður víst allt og ég þarf að fara að mynda mér skoðun á því hvað mig langar að verða þegar ég er orðin stór, eða ok stærri! Mér finnst enn fáránlegt að segja hvað ég er gömul þegar ég er spurð því að ég er ekki deginum eldri en 17. Fátt hefur á daga mína drifið hérna á Rifinu ég er bara byrjuð að vinna á leikskólanum. Það er bara æði að vera komin aftur í kringum börnin þó svo að það geti alveg reynt á þolinmæðina. En  já það er voða lítið að frétta annars, var að koma inn af rúntinum var að tékka hvort að eitthvað krassandi væri að ske í bænum en það sem ég sá í þessari ferð minni var : hópur af strákum í körfubolta fyrir utan skólan í Ólafsvík og svo voru nokkrir á sjoppuni að kaupa nammi eða leigja spólu og tveir bílar fyrir utan mig á rúntinum þannig að þetta er allt lífið hérna bara stuð;)!!!! Læt þetta nægja í bili þangað til ég kem með eitthvað krassandi....

» 4 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 12:51:03 / arnybogga

hress...

Þá er maður komin heim úr enn einni Reykjavíkurferðinni. Ég skrapp á sunnudagskvöldið og þurfti svo að fara í svona líka skemmtilega læknisskoðun. Það var nefnilega verið að þrýstimæla vélindað í mér og svo var ég í sýrustigsmælingu í 24 tíma. Maður var alveg agalega lekkert með rör í nefninu sem er var oní vélinda og svo plástrar út um allt á nefninu og svoleiðis! Mér leið vægast sagt illa með þetta drast allt tengt við mig en ég druslaðist þrátt fyrir það með þetta um allan bæ! Svo var það auðvita græjan sem skráði allt niður hún var framan á mér! Ég er alveg viss um að fólkið sem ég mætti þennan dag hefur örugglega hugsað, aha þessi búin að reykja sig í hel....er alveg saklaus af því í þetta skipti! En þetta varð ég víst að gera ef ég vil komast í þessa aðgerð sem ég er að reyna að komast í.... En já af vinnumálum er það að frétta þá er ég að fara að byrja að vinna á leikskólanum á Sandi á Mánudaginn verð alveg allan júní og svo verð ég líklega að taka eina og eina vakt á Elló líka eftir það þannig að þetta lítu bara þokkalega út svo verður það bara Marmaris í byrjun ágúst og svo kem ég bara í Reykjavíkina! Þetta verður allt fljótt að líða....

» 5 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 10:42:02 / arnybogga

Heaven

Baby you're all that I want
When you're lying here in my arms,
I'm finding it hard to believe
We're in heaven
And love is all that I need,
And I found it there in your heart
It isn't too hard to see
We're in heaven
  Ef einhver er að spá í þennan enska texta hérna þá er þetta brot úr lagi sem ég söng á námskeiðinu sem ég hef verið að tala um hérna í fyrri færstum. En annars er bara voðalega lítið að frétta héðan úr Rifinu. Ég er reyndar búin að taka þá ákvörðun hvort sem ég kemst inn í skóla í Reykjavíkinni eða ekki þá ætla ég að koma í bæinn og fara þá bara að vinna, ég er gjörsamlega að tapa geðheilsunni hérna og hafa ekkert að gera. Það er að vísu smá törn á mér núna akkurat en það er bara tímabundið. Svo er ég að fara í smá skreppiferð í Reykjavík og verð eina nótt í næstu viku. Ekkert alveg það skemmtilegasta að fara í svona skreppiferðir en það er í lagi í þetta skipti því að ég þarf ekki að keyra. Vá ég er gjörsamlega með ritstíflu núna þannig að þetta verður bara duga í bili, þið vitið þá allavegana að ég er á lifi.....


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Klukkan
Tyrkland
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 955 dögum